Færsluflokkur: Bloggar

Stjórnalagaþing og þjóðkirkjan

Þjóðkirkjan á Íslandi á ekki heimi í nútíma stjórnarskrá! Þjóðkirkja er fyrirbæri sem á ekki heima í nútíma samfélagi. Hin Evalengeliska Lútherskirkja á Íslandi á ekki að búa við nein sérréttindi umfram önnur trúarbrögð.  Í stjórnarskránni eiga að vera ákvæði um trúfrelsi allra þegna á Íslandi og að ekkert trúfélag sé gert hærra undir höfði en annað.

mbl.is Pétur Hafstein: Tillögur stjórnlagaráðs og þjóðkirkjan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Israelar vilja ekki frið

Það er löngu augljóst að Israelsmenn vilja ekki frið nema á sínum forsendum. Í skjóli verndara sinna í vestri  halda Þeir áfram að traðka á réttindum innfæddra (Palestínumanna).
mbl.is Vara við niðurrifi Ísraelsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatn er sameign

Þetta finnst mér slæm frétt. Vatnsveitur eiga að vera í eigu almennings en ekki "fjárfesta" eða annarra einkaaðila. Vatn er undirstaða alls lífs.
mbl.is Kaupir stærstu vatnsveitu Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjörsamlega fáranlegt!

Það er einmitt á svona tímum eins og við lifum á nú, sem við þurfum sem mest á að halda gagnrýnnri húmor eins og Spaugstofan hefur fært okkur í gegnum tíðina. Ég mótmæli að Spaugstofan verði tekin af dagskrá RÚV í vetur. Það er örugglega margt sem mætti fjúka þar áður en Spaugstofan er blásin af.

 


mbl.is Engin Spaugstofa í vetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sukkveldið Ísland!

Þetta enn eitt dæmið um sukkið og svíneríið sem viðgengst í þessu landi þrátt fyrir fögur loforð og fyrirheit um opið og réttlátt þjóðfélag. Þetta er ekkert annað en þjófnaður og fyrir það eiga menn að vera dæmdir í fangelsi en ekki verðlaunaðir með því að færa þeim eignir á silfurbakka!
mbl.is Nauðasamningar Bakkavarar samþykktir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógeðfelld glansmynd af fjárglæframanni

Í gærkvöldi sýndi Íslandi í dag á Stöð 2 pöntuð glansmynd af Björgúlfi Thor Björgúlfssyni. Ég verð að segja alveg eins og er, mér fannst þessi glansmynd afar ógeðfelld og greinlegt er að hefur hún verið gerð samkvæmt pöntun. Það er kannski ekki furðulegt þegar haft er í huga að Björgúlfur Thor er með "súper" fjölmiðlamann á fullum launum til þess að passa upp á ímyndina. Það voru allir að mæra drenginn, góður gæji, strangur húsbóndi en sanngjarn, góður vinur og félagi, fyrirmyndar faðir á bleiuvakt og svo framvegis. En það sem mér finnst ógeðfelldast í allri umræðunni um Björgúlf Thor er þessi samlíking sem hann er alltaf að reyna búa til við langafa sinn og minn, Thor Jensen. Það sem mér finnst að geri þessi samlíking svo ógeðfellda er það að enginn tapaði á viðskiptum sínum við Thor Jensen þó hann hafi farið þrisvar á hausinn á yngri árum. Hann greiddi upp allar sínar skuldir. En það eru allir Íslendingar, hvert einasta mannsbarn í landinu,  sem tapa stór fé á Björgúlfi Thor og það án þess að fólkið hafi nokkurn tímann átt í viðskiptum við hann! Gaman væri að vita hvað Stöð 2 fékk greitt fyrir auglýsinguna!

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband