Ógeðfelld glansmynd af fjárglæframanni

Í gærkvöldi sýndi Íslandi í dag á Stöð 2 pöntuð glansmynd af Björgúlfi Thor Björgúlfssyni. Ég verð að segja alveg eins og er, mér fannst þessi glansmynd afar ógeðfelld og greinlegt er að hefur hún verið gerð samkvæmt pöntun. Það er kannski ekki furðulegt þegar haft er í huga að Björgúlfur Thor er með "súper" fjölmiðlamann á fullum launum til þess að passa upp á ímyndina. Það voru allir að mæra drenginn, góður gæji, strangur húsbóndi en sanngjarn, góður vinur og félagi, fyrirmyndar faðir á bleiuvakt og svo framvegis. En það sem mér finnst ógeðfelldast í allri umræðunni um Björgúlf Thor er þessi samlíking sem hann er alltaf að reyna búa til við langafa sinn og minn, Thor Jensen. Það sem mér finnst að geri þessi samlíking svo ógeðfellda er það að enginn tapaði á viðskiptum sínum við Thor Jensen þó hann hafi farið þrisvar á hausinn á yngri árum. Hann greiddi upp allar sínar skuldir. En það eru allir Íslendingar, hvert einasta mannsbarn í landinu,  sem tapa stór fé á Björgúlfi Thor og það án þess að fólkið hafi nokkurn tímann átt í viðskiptum við hann! Gaman væri að vita hvað Stöð 2 fékk greitt fyrir auglýsinguna!

 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Pétur !

Um leið; og ég býð þig velkominn, í spjallheima (á blogið), þakka ég þér, skrumlausa grein, og hnökra lausa, með öllu.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi  /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 00:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband